Löginnheimtumat
Þegar krafa uppfyllir löginnheimtumat þá er frestur í síðasta útsenda bréfi liðinn (alla jafna er það ítrekun löginnheimtubréfs).
Krafa færist sjálfkrafa inn í löginnheimtumat í Innheimtukerfi Inkasso.
Þegar krafa er komin í löginnheimtumat, dómstólaferli eða í kröfuvakt, er kennitala greiðanda vöktuð hjá CreditInfo og Inkasso fær tilkynningar ef staða viðkomandi breytist.
Næsta stig innheimtunnar felur í sér að greiðanda verði stefnt fyrir dómstól eða send greiðsluáskorun. Kröfuhafar geta valið um eftirfarandi aðgerðir:
Listi yfir greiðendur sem komnir eru í löginnheimtumat
Hér að neðan er nánari útskýring á hverjum flipa.
Greiðendur
Sýnir lista yfir greiðendur þar sem krafa er komin í löginnheimtumat.
Heiti dálks | Skýring |
---|---|
Greiðandi | Kennitala greiðanda |
Nafn | Nafn greiðanda |
Í virkri innheimtu | Fjöldi krafna með stöðuna "virk" í innheimtukerfinu |
Lögveð | Hér sést hvort krafa á greiðandann sé lögveðskrafa |
Lögveð rennur út | Ef krafan er lögveðskrafa reiknar kerfið hvenær lögveð rennur út og birtir dagsetninguna hér |
Höfuðstóll | Samanlagður höfuðstóll virkra krafna |
Dagsetning mælt með málshöfðun | Dagsetning löginnheimtumats á elstu virku kröfu |
Fjöldi í flokki 1 | Lýsir földa skráninga hjá CreditInfo á viðkomandi kennitölu í alvarleikaflokki 1: Ógjaldfærni (t.d. árangurslaust fjárnám, gjaldþrot, greiðslustöðvun |
Fjöldi í flokki 2 | Lýsir földa skráninga hjá CreditInfo á viðkomandi kennitölu í alvarleikaflokki 2: Mjög alvarleg vanskil (t.d. árituð stefna, dómur, byrjun uppboðs) |
Fjöldi í flokki 3 | Lýsir földa skráninga hjá CreditInfo á viðkomandi kennitölu í alvarleikaflokki 3: Alvarleg vanskil (t.d. greiðsluáskorun, birting stefnu, greiðslusamkomulag í vanskilum) |
Fjöldi í flokki 0 | Lýsir fjölda skráninga sem eru ekki í alvarleikaflokki: t.d. sviptingar, rekstrarsöguskráningar, innkallanir vegna sameiningar eða slita á félagi, skráningar frá umboðsmanni skuldara) |
Dagsetning tilkynningar | Dagsetning nýjustu tilkynningar frá CreditInfo |
Tilkynning | Tilkynningar frá CreditInfo vegna skráninga |
Látin(n) / Brottfellt félag | Sýnir hvort greiðandi er skráður látinn í þjóðskrá eða ef félag er skráð brottfellt í fyrirtækjaskrá |
Skráð hjá CreditInfo | Hér sést hvort greiðandi er á vanskilaskrá hjá CreditInfo |
Aðgerðir | Listi yfir aðgerðir sem kröfuhafi getur framkvæmt. Athugið að hafa þarf samband við þjónustuver Inkasso ef það þarf að fella niður kröfu sem er komin í löginnheimtu. |
Í dómstólaferli
Sýnir lista yfir mál í dómstólaferli hjá Lögum og Innheimtu
Heiti dálks | Skýring |
---|---|
Mál nr. | Málsnúmer hjá Inkasso |
Greiðandi | Kennitala greiðanda |
Nafn | Nafn greiðanda |
Fjöldi krafna | Fjöldi krafna í málinu |
Höfuðstóll | Samanlagður höfuðstóll krafna í málinu |
Staða máls | Staða máls í innheimtuferlinu |
Stofnað | Dagsetning þegar krafa var færð í dómstólaferli |
Skýring | Ástæða þess að krafa var færð í dómstólaferli |
Dagsetning atburðar | Dagsetning síðustu uppfærslu á stöðu málsins |
Staða kröfu í IL+ | Staða dómsmáls |
Síðasti atburður | Nánari lýsing á síðasta atburði |
Kröfuvakt
Heiti dálks | Skýring |
---|---|
Mál nr. | Málsnúmer hjá Inkasso |
Greiðandi | Kennitala greiðanda |
Nafn | Nafn greiðanda |
Stofnað | Dagsetning þegar krafan fékk stöðuna kröfuvakt |
Skýring | Ástæða kröfuvaktar |
Aðgerðir
Stefna
Kröfuhafi óskar eftir því að greiðanda verði stefnt fyrir dómstól til innheimtu tiltekinna krafna. Útbúin er stefna og hún birt greiðanda. Athygli er vakin á því að ef greiðandi mótmælir kröfunni og grípur til varna þarf kröfuhafi að standa straum af kostnaði jafnóðum og til hans er stofnað.
Kröfuvakt
Kröfuhafi óskar eftir því að krafan verði sett í Kröfuvakt Inkasso. Þjónustan viðheldur kröfu umfram líftíma bankakröfu með ítrekunum. Fylgst er með hvort hagir greiðandans vænkist, ef það gerist þá er brugðist við með frekari innheimtuaðgerðum. Almennur fyrningarfrestur kröfuréttinda er fjögur ár.
Fresta afstöðu
Ekkert verður aðhafst frekar vegna kröfunnar að svo stöddu og ákvörðun um framhald innheimtu slegið á frest í tiltekinn tíma sem kröfuhafi ákveður. Kröfuhafi verður beðinn um að taka aftur afstöðu til málsins að frestinum loknum.
Fella niður
Kröfuhafi óskar eftir því að frekari innheimtu verði hætt og krafan felld niður í Innheimtukerfi Inkasso. Ef krafan er komin í löginnheimtu þarf að hafa samband við þjónustuver til að framkvæma þessa aðgerð.
Stefnubeiðnir
Þegar tekin er afstaða til þess hvort tilteknum greiðanda skuli stefnt, viljum við benda á að ólíklegt er að frekari innheimta gagnvart greiðanda, sem hefur verið merktur af Creditinfo með árangurslaust fjárnám eða gjaldþrot, beri árangur. Þá ber að hafa það í huga að kostnaður vegna frekari aðgerða er hlutfallslega hár ef samtala krafna hvers greiðanda er lægri en kr. 50.000. Það er því óvíst að frekari aðgerðir með dómstólameðferð svari kostnaði.