Í aðgerðalistanum á Kröfuspjaldinu er hægt að bæta hlutagreiðslu eða fullnaðargreiðslu við kröfuna.
Við staðfestingu á aðgerð þá uppfærist staða kröfunnar í Greidd og undirliggjandi bankakrafan er felld niður.
Með þessu móti eru kröfur í Innheimtukerfi Inkasso uppfærðar rétt sem og greiðsluskrár vegna bókhalds.
Notandi hakar við annað hvort fullnaðar- eða hlutagreiðslu
"Upphæð" birtir sjálfkrafa heildareftirstöðvar kröfunnar. Ef upphæð greiðslu er slegin inn í þennan reit, ráðstafast hún fyrst inn á innheimtukostnað. Ef greiðsla er sundurliðuð handvirkt í reitina fyrir neðan þá sýnir þessi reitur heildarupphæð greiðslu.
"Dagsetning greiðslu" - núverandi dagsetning kemur sjálfkrafa upp. Til þess að breyta er smellt inn í gluggan og greiðsludagur valinn úr dagatalinu.
Sundurliðun greiðslu Ef hakað er við reitinn kemur sjálfkrafa inn heildarupphæð liðs Ef önnur upphæð en heildarupphæð viðkomandi liðs er slegin inn í reitinn þá fer hakið af.