Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Þegar krafa uppfyllir löginnheimtumat þá er frestur í síðasta útsenda bréfi liðinn (alla jafna er það ítrekun löginnheimtubréfs).

Krafa færist sjálfkrafa inn í löginnheimtumat í Innheimtukerfi Inkasso. 


Næsta stig innheimtunnar felur í sér að greiðanda verði stefnt fyrir dómstól. Kröfuhafar geta valið um eftirfarandi aðgerðir:

Listi yfir greiðendur sem komnir eru í löginnheimtumat

Image Added


TODO: skjala dálka

Aðgerðir

Stefna

Kröfuhafi óskar eftir því að greiðanda verði stefnt fyrir dómstól til innheimtutiltekinna krafna. Útbúin er stefna og hún birt greiðanda. Athygli er vakin á því að ef greiðandi mótmælir kröfunni og grípur til varna þarf kröfuhafi að standa straum af kostnaði jafnóðum og til hans er stofnað.

Kröfuvakt

Kröfuhafi óskar eftir því að krafan verði sett í Kröfuvakt Inkasso. Þjónustan viðheldur kröfu umfram líftíma bankakröfu með ítrekunum. Fylgst er með hvort hagir greiðandans vænkist, ef það gerist þá er brugðist við með frekari innheimtuaðgerðum. Almennur fyrningarfrestur kröfuréttinda er fjögur ár.

Fresta afstöðu

Ekkert verður aðhafst frekar vegna kröfunnar að svo stöddu og ákvörðun um framhald innheimtu slegið á frest í tiltekinn tíma sem kröfuhafi ákveður. Kröfuhafi verður beðinn um að taka aftur afstöðu til málsins að frestinum loknum.

Fella niður

Kröfuhafi óskar eftir því að frekari innheimtu verði hætt og krafan felld niður í Innheimtukerfi Inkasso.

 

 

Info
titleStefnubeiðnir

Þegar tekin er afstaða til þess hvort tilteknum greiðanda skuli stefnt, viljum við benda á að ólíklegt er að frekari innheimta gagnvart greiðanda, sem hefur verið merktur af Creditinfo með árangurslaust fjárnám eða gjaldþrot, beri árangur. Þá ber að hafa það í huga að kostnaður vegna frekari aðgerða er hlutfallslega hár ef samtala krafna hvers greiðanda er lægri en kr. 50.000. Það er því óvíst að frekari aðgerðir með dómstólameðferð svari kostnaði.