...
...
...
...
...
...
...
...
...
...
Table of Contents |
---|
Almennt um skuldabréfakerfið
Skuldabréfakerfið er aðgengilegt úr vinstri valstiku hjá öllum fyrirtækjum sem hafa skráð sig fyrir þjónustunni.
Með því að smella á Skuldabréf fæst upp listi yfir öll skuldabréf kröfuhafans ásamt ýmsum upplýsingum um þau sem hægt er að þysja eftir.
Info |
---|
Aðeins þeir notendur sem eru með bondsadmin hlutverkið geta stofnað ný skuldabréf. Venjulegir notendur geta skoðað skuldabréfin. |
...
Grunnupplýsingar
Svæði | Lýsing | Ath |
Lántakandi | Kennitala aðalgreiðanda skuldabréfs. |
|
Höfuðstóll | Höfuðstóll skuldabréfs. Þessi upphæð verður innheimt af skuldabréfakerfinu. |
|
Flokkur | Velja verður flokk fyrir öll skuldabréf. Með flokknum koma sjálfgefin gildi fyrir bréfið og sumum má breyta. |
|
Fjöldi vaxtaafborgana eingöngu | Ef aðeins á að greiða vexti af skuldabréfi í ákveðinn tíma skal tilgreina fjöldi slíkra afborgana hérna. |
|
Fjöldi afborgana | Skuldabréf skal endurgreitt með þessum fjölda afborgana |
|
Fjöldi mánaða á milli greiðslna | Sjálfgefið er 1 mánuður á milli afborgana. Hægt er að hafa hvaða gildi sem er. |
|
Rollup tímabil | Default gildi er 12. Það þýðir samt ekki að rollup sé reiknað á skuldabréfið heldur er það ákveðið af flokknum. |
|
Vísitala | Verðtryggt eða ekki. Ef skuldabréf á að fylgja tiltekinni vísitölu skal velja hana hérna. |
|
Grunnvísitala | Ef skuldabréf fylgir vísitölu skal gefa upp grunnvísitölu skuldabréfs hérna. Ef skuldabréf er verðtryggt en ekkert gildi hér sett þá sækir kerfið gildið fyrir útgáfudag bréfsins. |
|
Vaxtadagur | Hvenær vextir reikningast frá. |
|
Útgáfudagur | Hvenær skuldabréf var gefið út. |
|
Fyrsta afborgun | Hvenær fyrsta afborgun á að eiga sér stað. Hægt er að hafa dagsetningu aftur í tímann en þá mun kerfið stofna liðna gjalddaga eins og það á við. |
|
Tilvísun | Frjálst textasvæði til að setja inn tilvísun á skuldabréfið t.d. úr öðru kerfi. |
|
Senda greiðsluseðil með pósti | Sjálfgefið er að lántakandi fær ekki sendan greiðsluseðil í pósti en með því að haka hér við þá er greiðsluseðill prentaður og sendur í pósti á kostnað lántakanda. |
|
...
Vaxtatöflur fyrir breytilega vexti þarf að uppfæra reglulega til samræmis við breytingar hjá þeim aðila sem fylgja skal.
Algengt er að fylgja ákvörðunum SÍ um Almennir vextir af peningakröfum hvort sem um óverðtryggð eða verðtryggð lán sé að ræða. Meira um það --> {+}http://www.sedlabanki.is/annad-efni/vextir-sedlabankans-og-adrir-vextir/+
SÍ er að vinna að því að koma vaxtabreytingum í XML þjónustu ({+}http://www.sedlabanki.is/hagtolur/xml-gogn/+). Það verður innleitt hjá Inkasso þegar það er tilbúið. Þangað til þarf að uppfæra þær vaxtatöflur handvirkt.
Uppsetning fyrirtækis/kröfuhafa
...