Fresta kröfu
Aðgerðin "Fresta kröfu" stöðvar innheimtu á kröfunni á meðan frestur er í gildi. Dráttarvextir reiknast áfram.
Þegar fresturinn rennur út heldur innheimtuferlið áfram frá því sem frá var horfið.
Staðsetning aðgerðar
Aðgerðin "Fresta kröfu" er aðgengileg frá kröfusíðunni (Claims) og á kröfuspjaldinu (editClaim)
Mynd 1: Staðsetning aðgerðar - Kröfusíða
Mynd 2: Staðsetning aðgerðar - Kröfuspjald
Fresta kröfu
Þegar smellt er á "Fresta kröfu" eða "Frestunar dagsetning" kemur upp frestunargluggi þar sem velja þarf dagsetningu:
Samningsgjald
Þegar dagsetning hefur verið valin birtist gluggi fyrir samningsgjaldi. Hámarks upphæð samningsgjalds fer eftir gjaldskrá Inkasso.
Aðgerðin er staðfest með því að smella á "Vista".
Sleppa / Lækka samningsgjald
Hægt er að sleppa samningsgjaldi með því að skrifa 0 inn í reitinn eða lækka gjaldið með því skrifa aðra upphæð inn í reitinn.
Aðgerðin er staðfest með því að smella á "Vista".
Krafa með greiðslufresti
Taka út frest
Til þess að taka út frest er farið í "Fresta kröfu" á kröfuspjaldinu.
- Smellt á "Hreinsa" þannig að dagsetningarglugginn sé tómur.
- Staðfesta með því að smella á "Vista"